Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar Alþingis og oddviti framsóknarmanna í Reykjavík segist styðja kröfu verkalýðsforystunnar um 300 þúsund króna lágmarkslaun fortakslaust. Þessa yfirlýsingu gaf hún í samtali við Pál Magnússon í þjóðmálaþættinum Þjóðbraut í gærkvöld. Með þessum orðum tekur Vigdís, sem einn af forvígismönnum ríkjandi stjórnvalda af skarið í kjaramálum - og fer að mörgu leyti þvert á orð fjármálaráðherra í umræðunni um kjaramál, en hann hefur verið mun varfæranri í ummælum sínum um þetta efni.
Ummæli Vigdísar eru í anda þeirra krafna sem Starfsgreinasamband Íslands sett fram á síðustu dögum. Sambandið, sem fer með samningsumboð fyrir um ríflega tíu þúsund manns, hefur boðað til umfangsmikilla verkfallsaðgerða frá og með 10. apríl næstkomandi, en viðræðum þess við Samtök atvinnulífsins var slitið í síðustu viku. Himinn og haf er á milli krafna þess og samningsvilja vinnuveitenda.