Styðjum ekki sjálfstæða fjölmiðla

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans segir í Markaðstorginu á Hringbraut að Ísland styðji ekki við sjálfstæða innlenda fjölmiðla og dagskrágerð eins og gert er á öllum hinum Norðurlöndunum. Þvert á móti þá sé allt gert til þess að svelta þá segir Þórður Snær.

Þá segir hann að engar reglur gildi um dulið eignarhald eða fjármögnun og nær allir fjölmiðlar á Íslandi séu reknir með tapi.

Þórður Snær telur að tóbaks- og áfengisauglýsingar ættu að vera sjálfsagðar í nútímasamfélagi enda aðgengilegar á netinu, facebook og í erlendum miðlum- þeir einu sem tapi á þessu fyrirkomulagi séu innlendir framleiðendur og fjölmiðlar.

Til þess bæta samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla þurfi að leyfa 25 prósent endurgreiðslu á innlendri frétta- og dagsskrárgerð og takmarka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði.

Smeltu hér til að horfa á viðtalið : https://youtu.be/jxtbpmsdcII