Styðja frestun en ekki aðra þjóðaratkvæðagreiðslu

Breska þingið samþykkti í gær frestun á útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu en hafnaði í leiðinni annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ganga eigi úr ESB yfir höfuð. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, mun nú óska eftir því við leiðtogaráð ESB að fá leyfi til þess að fresta útgöngunni, sem á annars að fara fram 29. mars. CNN greinir frá.

Ástæðan fyrir atkvæðagreiðslunni er sú að May hefur ekki enn fengið breska þingið til þess að samþykkja útgöngusamning sinn við ESB. Honum hefur verið hafnað tvisvar af þinginu og verður kosið um hann að nýju í næstu viku, þó ekki hafi verið gefin upp nákvæm dagsetning ennþá. Þá hefur breska þingið einnig hafnað útgöngu án samnings og May hafði því ekki margra kosta völ.

Ekki er gengið að því sem vísu að ESB samþykki frestun, þar sem allir 27 meðlimir í leiðtogaráðinu þurfa að samþykkja hana. Þó hefur Donald Tusk, forseti leiðtogaráðsins, látið hafa eftir sér að hann muni hvetja alla meðlimi ráðsins til að íhuga að veita Bretlandi leyfi fyrir því að fresta útgöngunni í talsverðan tíma, svo Bretlandi sé unnt að hugsa upp á nýtt markmið og stefnu sína þegar kæmi að samningaviðræðunum milli Bretlands og ESB.