Helgi Seljan talaði við Sigurð Inga Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformann Framsóknarflokksins, rétt í þessu. Þar kom fram að fari svo að Sigurður Ingi tapi formannskjörinu og Sigmundar Davíð Gunnlaugsson verði endurkjörinn, mun Sigurður Ingi styðja Sigmund, styðja þann formann sem flokkurinn velur.
Sigurður Ingi Jóhannsson segist hafa fengið margar áskoranir um að gefa kost á sér til formennsku í Framsóknarflokki. Hann sagði í viðtalinu, sem var í þættinum Vikulokin á Rás eitt, að vegna þeirrar ólgu sem er í flokknum fari best á að flokksþingi kjósi forystu flokksins.
Sigurður Ingi talaði um ólgu inna flokksins og hana verði að lægja. Aðspurður um hvort Sigmundur Davíð geti gert það, sagðistg Sigurður Ingi að hann muni bakka upp þann sem verður kjörinn formaður.
„Í þessu kristallast í þessu miklar og skiptar skoðanir um hvort Sigmundi Davíð hafi tekist að endurreisa taust sitt inna flokksins.“ Og: „Ég hef ágætan skilning á skoðunum þess fólks sem kemur til mín og skorar á mig þar sem fólki þykir hann ekki hafa skýrt sitt mál nægilega.“
Helgi Seljan kom að fullyrðingum Sigmundar Davíðs um að Sigurður Ingi hafi gefið sér loforð um að fara ekki gegn honum í formannskjöri. „Gastu honum slíkt loforð?“
„Nei, fyrst og fremst snérist þetta um það á þeim tíma að formaðurinn okkar fengi svigrúm uil að gera upp ssín mál og koma aftur til flokksins.“
Síðan sagði Sigurður að best væri að gera þetta allt upp á flokksþingi.
En hefði Sigurður viljað að Sigmundur hefði gert þessi mál upp með öðrum hætti.
„Ég hefði kosið að hann hefði gert það með öðrum hætti.“