Stuttmynd páls í kvöld: ferli vatnsins

Ferli vatnsins heitir nýstárleg stuttmynd úr smiðju Páls Steingrímssonar sem sjónvarpsstöðin Hringbraut sýnir í kvöld klukkan 20:30, en sýningar á myndum hans á stöðinni hafa vakið mikla athygli.

Ferli vatnsins er án orða, tólf mínútna löng og sýnir vatnið í öllum sínum fjölbreytilegum myndum. 

Oft og tíðum hefur ferli vatnsins verið lýst sem hringrás, enda gufar það upp, safnast saman í himinhvolfinu og fellur loks niður sem úrkoma og getur ferðast, svo hundruðum ára skiptir, undir yfirborði jarðar áður en það kemst aftur undir beran himin.

Þá eru eiginleikar vatnsins líka næsta óendanlegir, hvort heldur það er frosið eða þýtt.

Allar þessar myndir vatnsins sjást í þessari listrænu og sérstæðu heimildarmynd sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 20:30.