Stutt í framkvæmdir á laugardalsvelli

Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld. Geir kemur víða við, svo sem um hver staða sambandsins, segir frá ráðningu Lars Lagerbäck á sínum tíma og útilokar ekki að Eiði Smára verðið boðið að verða aðstoðarlandsliðsþjálfari.

Geir segir að sterk fjárhagsstaða KSÍ verði ekki notuð til bygginga á mannvirkjum. Hið minnsta renna 300 milljónir til aðildarfélaganna og eins fari peningar í uppbyggingu knattspyrnunnar á Íslandi.

Geir segir, ótengt þessu, að óðum styttist í framkvæmdir á Laugardalsvelli, og að þær séu mjög brýnar. Unnið er að hagkvæmisúttekt um rekstur nýrra mannvirka á vellinum, fyrir skrifstofur, hótel og fleira. Hann segir skammt að bíða tíðinda af þeim áformum.

Geir segir að marga undri að Ísland skuli eigi lið úrslitum Evrópukeppninnar í karlaflokki og að kvennaliðið sé að fara í úrslitakeppni í þriðja sinn. Hann segir þá staðreynd sýna að mikið starf sé unnið í kvennaknattspyrnunni og bætir við að nú verði enn bætt í. Geir segir konur, bæði sem keppendur og áhugamanneskjur, sífellt skipta meira máli og því beri að auka veg kvenna í knattspyrnunni.