Stutt á milli skúrks og hetju

\"Skrautleg umræða hefur farið fram í kjölfar ferðaloka ungu strákanna sem hugðust ganga yfir landið á dögunum.  Aðspurður hvaða skoðun ég hafi á þessu uppátæki er svarið tvíþætt.\"

Þetta skrifar Smári Sigurðsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar í tilefni af endasleppri hálendisför útlenskra ævintýrapilta sem hugðust sigrast á íslenskum óbyggðum en komust hvað eftir annað í hann krappann og var bjargað á ystu nöf, talsvert oftar en einu sinni.

\"Ég fagna því að enn skuli vera til menn sem skoða vilja heiminn, leggja mikið á sig og uppgötva ævintýrin,\" skrifar Smári og bætir við að þeir hafi ekki gefist upp þótt á móti hafi blásið: \"Ég skil af hverju menn takast á við svona verkefni, og þeir gerðu margt rétt.  Hinsvegar fòr ýmislegt úrskeiðis sem komast hefði mátt hjá og heppilegra hefði  verið að fylgja þeim  ráðleggingum sem buðust. – því fór sem fór og stutt er milli þess að vera skúrkur eða hetja.\"

Hann segir þetta ekki hafa verið fyrsta leiðangurinn sem þurft hafi fleiri en eitt útkall á túrinn, það hafi líka þurft að fara fleiri en eina ferð á eftir sama Íslendingnum upp á sömu ófæru heiðina og oftar en einu sinni á eftir sama trampólíninu: \"Það hinsvegar bætir ekki þrefalt verkefni á þessu ungu pilta.  En við hefðum farið í fjórðu ferðina þeim til aðstoðar væru þeir í hættu staddir,\" skrifar Smári.

Svo skrifar formaðurinn: \"Mér hugnast ekki boð og bönn á þá sem vilja takast á við svona verkefni.  Að banna eða setja hömlur á einn ferðahóp frekar en annan eða kvaðir um ferðir á einn jökul frekar en annan.  Tel vænlegra til árangurs að upplýsa, fræða og leiðbeina þeim sem ætla að takast á við náttúru Íslands og höfða til skynsemi manna.\"