Sturla Snær Snorrason, landsliðsmaður í alpagreinum, lenti í 3. sæti á svigmóti í Val Palot á Ítalíu í gær. Það er besta mót ferilsins hjá honum til þessa og áætlað er að hann stökkvi upp um tæplega 170 sæti á heimslistanum í svigi. Skíðasamband Íslands greinir frá.
Sturla keppti einnig á öðru svigmóti sama dag og lenti þar í 7. sæti. Í báðum mótum hafði hann rásnúmer 19 og var því 19. sterkasti keppandinn á mótinu miðað við heimslista FIS. Fyrir mótin tvö í Val Palot fékk Sturla 26.88 og 17.79 FIS stig, sem er mikil bæting á heimslistanum þar sem hann er með 29.13 FIS stig. Hann er núna í 468. sæti á heimslistanum en reikna má með því að hann fari upp í um 300. sæti eftir þessi tvö mót.