Sturla jónsson íhugar forsetaframboð

Sturla Jónsson, sem einna kunnastur er fyrir störf sín sem vörubílsstjóri og fyrir að bjóða fram stjórnmálaflokkinn Sturla Jónsson í síðustu alþingiskosningum, er að velta fyrir sér forsetaframboði. Frá þessu greinir hann á nýlegri fésbókarfærslu sinni.

Hann bætist þar með í hóp með blaðamanninum Ómari Valdimarssyni, sem sagði frá því úndir lok síðasta mánaðar að hann  íhugi að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands á næsta ári, þegar yfirstandandi kjörtímabil Ólafs Ragnars Grímssonar rennur sitt skeið. Þegar hefur verið stofnuð Facebook-síða þar sem skorað er á Ómar að bjóða sig fram, undir yfirskriftinni „Ómar Valdimarsson á Bessastaði 2016,“ sem 104 kunna að meta það sem af er. Nokkuð fleiri, eða 113, hafa lækað við stöðuuppfærslu Sturlu þar sem hann opinberaði vangaveltur sínar um framboð. Auk þess hvetja nokkrir einstaklingar Sturlu til dáða í ummælum við stöðuuppfærsluna.

Þótt enn sé ár til forsetakosninga, og nokkrir mánuðir þar til að Ólafur Ragnar tilkynntir hvort hann bjóði sig aftur fram, þá er umræða um forsetakosningarnar komin á fullt. Óperusöngvarinn Bergþór Pálsson sagði frá því fyrr í mánuðinum að hann hafi velt hlutverki forseta Íslands, mikilvægi þess fyrir þjóðina og kostum sínum og göllum til að sinna embættinu mikið fyrir sér í kjölfar þess að margir hafa hvatt hann til að bjóða sig fram í það sumarið 2016. Bergþór segist ekki vera kominn á þá niðurstöðu að kostir hans vegi þyngra en þó sé ekki tímabært að ákveða eitt eða neitt.

Í þjóðarpúlsi Gallup sem birtur var í júlí virtust flestir landsmenn ekki vera búnir að gera upp hug sinn í þessum efnum, en þó var Ólafur Ragnar Grímsson, sitjandi forseti, nefndur þar af 11% og Jón Gnarr af 20%, en önnur nöfn virtust ekki vera fólki ofarlega í huga.