Stundum erum við ekki ein þjóð!

\"Stund­um er eins og hér sé ekki eitt þjóðfé­lag, ekki ein þjóð í einu landi. Orðræðan er á stund­um óvæg­in svo ekki sé meira sagt. Ekki síst á samfélagsmiðlunum sem við öll erum að feta okk­ur inn á.\"

Þetta sagði Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráðherra í hátíðarræðu á Hóla­hátíð í gær og bætti við: \"Hætt er við að þar sé fleira látið flakka á lykla­borðinu fyr­ir fram­an tölvu­skjá­inn en gert yrði aug­liti til aug­lit­is. Umræðan á spjallþráðum get­ur því á stund­um orðið býsna hörð. Kannski hef­ur þessi þróun leitt af sér, að minnsta kosti í bili, af­slappaðri sam­skipti en áður, sem í sjálfu sér kann að vera af hinu góða inn­an skyn­sam­legra marka.\"

Hún var aðalræðumaður á hátíðinni í gær sem oft og einatt hefur verið vettvangur fyrir ráðamenn til að tala tæpitungulaust: \"Auðvitað erum við ekki sam­mála um allt og við eig­um ekk­ert að vera það og það er ekk­ert eðli­legra en að um­deild mál fái mikla og þunga umræðu og gagn­rýni – það má alls ekki skilja orð mín á þann veg að ég sé að kvarta und­an henni, það geri ég ekki, en ég og við öll verðum alltaf að reyna að gagn­rýna án þess að meiða,\" sagði ráðherra á hátíðinni..

Ólöf minnti á reglur lýðræðisins: \"Það er ekki hægt að ná sam­komu­lagi um hluti sem við erum full­kom­lega ósam­mála um. Þá gilda regl­ur lýðræðis­ins, að fyr­ir hendi sé lýðræðis­leg­ur meiri­hluti sem fer fyr­ir sinni stefnu, þó með fullri virðingu fyr­ir sjón­ar­miðum og rétti minni­hlut­ans til að koma at­huga­semd­um og sjón­ar­miðum sín­um á fram­færi.“ 

Hún seg­ir Íslend­inga sjá fram á bjart­ari tíma í efna­hags­mál­um þjóðar­inn­ar og þá reyni á þolgæði okk­ar: \"Að hafa út­hald til að bíða efir því að kornið safn­ist í hlöðurn­ar. Það skipt­ir öllu máli fyr­ir okk­ur Íslend­inga á þess­um tíma­punkti að rasa ekki um ráð fram, held­ur ljúka við að reisa efna­hags­lífið við eft­ir þær ágjaf­ir sem við urðum fyr­ir í bankakrepp­unni. Að hafa þol­in­mæði og staðfestu til að taka á mál­um, standa gegn þenslu og aukn­um rík­is­gjöld­um en verja þess í stað þeim fjár­mun­um sem til skipt­anna eru til að greiða niður skuld­ir rík­is­sjóðs og búa í hag­inn fyr­ir upp­bygg­ingu kom­andi ára,\" sagði Ólof í Hjaltadal í gær.