Stundum er betra að segja ekki neitt

Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, er allt annað en sátt við þau orð, Gylfa Arnbjörssonar forseta ASÍ, sem hann lét falla í Þjóðbraut í síðustu viku. Gylfi sagði þá kennara hafa fengið drjúga launahækkun árið 2014 og þeir séu þar með búnir að fá þá launaleiðréttingu sem þeir nú tala um að fá.

Halldór Halldórsson hefur talað á svipaðan veg og Gylfi, en báðir hafa þeir verið gestir Þjóðbrautar þar sem launamál kennara hafa verið til umfjöllunnar.

Hún segir eitt að formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi skoðun á launum kennara, „...en félagi okkar, sem maður hefði haldið að ætti að vera samherji, sem berst fyrir bættum kjörum almennings í landinu, að hann skuli tala niður kjarabaráttu annars fólks. Stundum er betra að segja ekki neitt,“ segir Guðríður.

Guðríður var í viðtali í Hádegisútvarpi Þjóðbrautar, hægt er að hlusta á viðtalið hér:

 https://soundcloud.com/user-777639753/hadegi-2811-ga

-sme