Hæstiréttur vísaði frá máli Glitnis HoldCo gegn Stundinni og Reykjavík Media. Krafan var að fjölmiðlarnir afhentu gögn úr gamla Glitni um viðskiptavini bankans sem fjölmiðlarnir hafa undir höndum.
Visir.is segir frá.
Í fréttinni segir að Landsréttur hafði áður staðfest ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að fjölmiðlarnir þyrftu ekki að afhenda gögnin. Glitnir Holdco áfrýjaði þeim úrskurði til Hæstaréttar sem dæmdi í málinu í fyrradag.
Ekki var heimild til þess að kæra úrskurð Landsréttar í málinu til Hæstaréttar, þar sem í úrskurði Landsréttar voru staðfest ákvæði í dómi Héraðsdóms um frávísun, segir í úrskurði Hæstarréttar. Fjallað hafði meðal annars verið um viðskipti Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu setti í október lögbann á fréttaflutning upp úr gögnum úr Glitni.