Stundin lagði glitni í landsrétti

Landsréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í Stundarmálinu svokallaða. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Stundina og Reykjavík Media af lögbannskröfu Glitnis HoldCo í febrúar en lögbann var lagt á fréttaflutning miðlanna upp úr gögnum Glitnis að kröfu eignarhaldsfélagsins á síðasta ári.

Það þarf þó ekki endilega að þýða að Stundin megi aftur hefja fréttaflutning upp úr gögnunum. Samkvæmt lögfróðum, sem Vísir hefur rætt við, gæti lögbannið aftur tekið gildi ef Glitnir sækir um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar - rétt eins og varð raunin þegar málinu var áfrýjað til Landsréttar. Þá yrði lögbanninu ekki fyllilega aflétt fyrr en endanlegur dómur fellur í Hæstarétti.

Sýslumaðurinn á höfuborgarsvæðinu lagði lögbann á frekari fréttaflutning upp úr gögnum sem Stundin hafði undir höndum að beiðni Glitnis HoldCo, eignarhaldsfélags sem heldur utan um eignir sem tilheyrðu þrotabúi Glitnis, 13. október.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018181009237