Stundin: guð er dýrkeypt hugmynd

Viðamikil úttekt er á stöðu þjóðkirkjunnar í Stundinni sem kom út í morgun.

Um forsíðuefni blaðsins er að ræða og er yfirskriftin: ENDALOK ÞJÓÐKIRKJUNNAR.

Þar segir að þjóðkirkjan standi ekki lengur undir nafni sem kirkja þjóðarinnar. Ef þróun verði í takt við seinni ár verði aðeins helmingur landsmanna í kirkjunni eftir 20 ár.

Ríkið greiði laun 138 presta en stöðugildi sálfræðinga í heilsugæslum landsins séu aðeins 15. Með auknum upphæðum til kirkjunnar nú á fjárlögum er það greinilega stefna núverandi stjórnvalda að snúa vörn í sókn. Kirkjan fær milljarða frá ríkinu árlega.

Þá kemur fram hjá Stundinni að forsætisráðherra vill efla kristnifræði í skólum.

Ásmundur Friðriksson þingmaður meirihlutans hélt ræðu í umræðu um fjárlög í gær og fór mikinn í að gagnrýna að verið væri að útrýma kristni hér á landi.