Rúmu ári eftir að lögbann var sett á umfjöllun Stundarinnar um Glitnisskjölin heldur blaðið áfram umfjöllun sinni um málið í dag.
Í nýjasta blaði Stundarinnar er Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, á forsíðunni undir fyrirsögninni „Bannaðar fréttir birtar“. Þar kemur fram að Glitnisskjölin sýni að Bjarni hafi leitt viðskipti Engeyinga í meira mæli en hefur komið fram og afskriftir tengdar þeim nemi 130 milljörðum króna. Einnig kemur fram að Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra, sé í skjölunum.
Landsréttur hafnaði 5. október kröfu Glitnis HoldCo um staðfestingu lögbanns sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafði lagt á umfjöllun Stundarinnar og Reykjavík Media sem byggð er á gögnum frá Glitni banka. Landsréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði komist að sömu niðurstöðu.
Áfrýjunarfrestur í einkamálum til Hæstaréttar er fjórar vikur og á hann að renna út 2. nóvember.
Nánar á
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/10/26/stundin_ryfur_logbann_um_glitnisskjol/