Stúkuhúsið: eitt besta mathús íslands

Einn skærasti gimsteinninn í veitingahúsaflóru landsmanna er á Patreksfirði, en þar er Stúkuhúsið að finna, sjaldgæflega eftirminnilegan stað sakir einstaks umhverfis, glæsilegra innviða, virðingu fyrir menningu og sögu, persónulegrar þjónustu og stórkostlegs matar. Staðarhöldurunum Steinunni Finnbogadóttur og Frey Héðinssyni hefur tekist að gera þetta veitingahús, með sínu óviðjafnanlega útsýni yfir fjörðinn, að einum allra flottasta restaurant landsins - og eiga mikinn heiður skilið. Ferð vestur á firði er virði þess eins og sækja Stúkuhúsið heim, en auðvitað er margt að skoða í grennd; náttúrulaugina á Tálknafirði, Rauðasand og Látrabjarg svo fátt eeitt sé nefnt.

Stúkuhúsið er sér annars langa sögu. Eins og heiti þess bendir til var það byggt af deild Stórstúku Íslands á Patreksfirði. Það var fyrir réttum 90 árum. Húsið hefur átt misjafna tíma eftir að stúkan sleppti af því hendinni. Það var skemmtistaður og var síðar breytt í íbúðarhús 1945 og seinna í verbúð fyrir ástralskar fiskverkastúlkur, svo nokkuð sé nefnt. Eigendur hafa verið margir. Síðast átti Vesturbyggð húsið áður en Steinunn og Freyr tóku við því og endurgerðu gaflanna á milli. Árangurinn er til slíkrar fyrirmyndar að hver einasti gestur fyllist gleði og þakklæti ...