Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um tæplega 7% milli janúar og febrúar samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. 64% segjast styðja ríkisstjórnina. Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna.

Fylgi Miðflokksins eykst úr 7% í 9%. Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn minnkar um tvö prósentustig, er nú tæplega 24%. Breytingar á fylgi annarra flokka eru óverulegar.

Nú segjast nær 17% myndu kjósa Vinstri græn, rúmlega 15% Samfylkinguna, um 12% Pírata, nær 7% Viðreisn, um 6% Flokk fólksins og rúmlega 2% aðra flokka, þar af 1,3% Bjarta framtíð. Um 6% svarenda myndu skila auðu eða ekki kjósa.