Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Samkvæmt nýjustu könnun MMR um fylgi stjórnmálaflokka mælist Sjálfstæðisflokkurinn sem fyrr með mest fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi, eða 20,2 prósent. Fylgi flokksins hefur þó lækkað um rúm tvö prósentustig frá síðustu könnun MMR. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um rúm fjögur prósentustig og mælist nú 40,4 prósent, en var 44,6 prósent í síðustu mælingu.

Næst á eftir Sjálfstæðisflokknum kemur Samfylkingin með 14,1 prósent fylgi, sem er nær óbreytt frá síðustu könnun, og Vinstri græn með 13,4 prósent, sem hækkaði um tæplega eitt og hálft prósentustig frá síðustu mælingu.

Framsóknarflokkurinn mælist með 9,8 prósent fylgi, sem er tæplega einu og hálfu prósentustigi minna en við síðustu mælingu. Á sama tíma jókst fylgi Viðreisnar um tæplega eitt og hálft prósentustig og er nú 9,2 prósent. Þá bætir Sósíalistaflokkur Íslands sömuleiðis við sig tæplega einu og hálfu prósentustigs fylgi og mælist nú með 4,2 prósent fylgi.

Samantekt á fylgi stjórnmálaflokka er eftirfarandi:

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 20,2 prósent og mældist 22,5 prósent í síðustu könnun.

Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 14,1 prósent og mældist 14,3 prósent í síðustu könnun.

Fylgi Vinstri grænna mælist nú 13,4 prósent og mældist 12,1 prósent í síðustu könnun.

Fylgi Pírata mælist nú 13,4 prósent og mældist 13,3 prósent í síðustu könnnun.

Fylgi Framsóknarflokksins mælist nú 9,8 prósent og mældist 11,2 prósent í síðustu könnun.

Fylgi Miðflokksins mælist nú 9,2 prósent og mældist 9,2 prósent í síðustu könnun.

Fylgi Viðreisnar mælist nú 9,2 prósent og mældist 7,8 prósent í síðustu könnun.

Fylgi Flokks fólksins mælist nú 5,1 prósent og mældist 5,0 prósent í síðustu könnun.

Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mælist nú 4,2 prósent og mældist 2,8 prósent í síðustu könnun.

Fylgi annarra flokka mælist 1,4 prósent samanlagt.