Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Vinstri græn tapa fylgi, Viðreisn eykur við sig og stuðningur við ríkisstjórnina minnkar samkvæmt nýju Þjóðarpúlsi Gallup.Heilt yfir eru litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða en fylgi Vinstri grænna minnkar um nær þrjú prósentustig og fylgi Viðreisnar eykst um tæplega tvö prósentustig. Nær 14 prósent segjast myndu kjósa Vinstri græn færu kosningar til Alþingis fram í dag og rösklega 8 prósent segjast myndu kjósa Viðreisn.

Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka. Rösklega 24 prósent segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 16 prósent Samfylkinguna og tæplega 13 prósent Pírata. Framsókn og Miðflokkurinn mælast nær jafnstórir. Rúmlega 9 prósent segjast styðja Framsóknarflokkinn og nær 9 prósent Miðflokkinn. Þá styðja 5 prósent  Flokk fólksins.

Tæplega 9 prósent taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og ríflega 6 prósent svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um tæplega 4 prósentustig milli mánaða, en rúmlega 60 prósent þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.