Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup hefur stuðningur landsmanna aukist við rikisstjórnina. Stuðningur við ríkisstjórnina jókst um tvö prósentustig milli mánaða, en liðlega 36% þeirra sem tóku afstöðu segjast nú styðja hana. Nefna má að fjárlagafrumvarp var lagt fram í mánuðinum.
Mjög margir taka ekki afstöðu eða eru óákveðnir en Sjálfstæðisflokkurinn eykur fylgi sitt um tæp þrjú prósentustig milli mánaða og mælist nú með 24%. Píratar mælast stærsti flokkurinn líkt og undanfarna mánuði og var fylgi þeirra 35% í september.
11% sögðust myndu kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð, 10% Framsóknarflokkinn, 10% Samfylkinguna , 6% Bjarta framtíð sem þýðir að flokkurrinn myndi fá þingmenn ef gengið væri til kosninga í dag og úrslit yrðu samkvæmt könnuninni.
5% segjast myndu kjósa aðra flokka en nú eiga sæti á Alþingi.