Stuðningsyfirlýsing bjarnargreiði

Páll segir í pistli sínum í dag að breskir fjölmiðlar hafi gert mikið mat úr stuðningsyfirlýsingunni sem Blair flutti í vikunni. Þar lýsti Blair yfir skilyrðislausum stuðningi við sinn gamla flokk og leiðtoga hans, Ed Miliband, í komandi kosningum.


Kosningabaráttan í Bretlandi er nú í algleymingi. Þingkosningar verða í landinu þann 7. maí. Líkt og hér á landi virðist almenningur í Bretlandi vera fráhverfur stóru flokkunum tveimur, og allt bendir til að stefni í minnihluta- eða samsteypustjórn. 


Staða heilbrigðiskerfisins og framlög til þess er mikið hitamál í kosningabaráttunni, en loforð Íhaldsflokksins um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Bretar vilji áfram vera í Evrópusambandinu nýtur ekki mikillar hylli. 


Skotar munu að öllum líkindum gegna lykilhlutverki í kosningunum, en þeir höfnuðu sjálfstæði í fyrra í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fylgi Verkamannaflokksins í Skotlandi, sem jafnan hefur verið höfuðvígi hans, er hrunið með þeim afleiðingum að Skoski þjóðarflokkurinn gæti komist í lykilstöðu við stjórnarmyndun eftir kosningar. 



Pistill Páls í heild sinni.