„Fyrsta gigg var bara til einnar nætur hugsað,“ segir Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður en hljómsveitin fagnar nú fimmtíu ára afmæli sínu. Jakob Frímann og Egill Ólafsson ræddu upphafið, klæðaburðinn og sögu hljómsveitarinnar í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut i gær.
„Við tókum lög sem við höfðum samið bara í frímínútum og skólastofum og svona,“ segir Jakob þegar hann rifjar upp ferilinn. Hann bætir við að þeir félagar, í það minnsta hann og Valgeir Guðjónsson, kunni kennurum sínum miklar þakkir fyrir skilninginn.
„Einar Laxness var sögukennarinn okkar. Hann gaf okkur oft svigrúm til að fara og vera skapandi. Vigdís varð náttúrulega forseti síðar. Hún var kennslukonan okkar og sýndi því mikinn stuðning að við værum meira með hugann við þetta en frönskuna. Það varð til þess að við urðum síðan að fara í einkatíma til hennar, við Valgeir, nokkrum sinnum til að halda dampi,“ bætir hann við.
Stórskemmtilegur þáttur með Sigmundi Erni, Jakobi Frímanni og Agli Ólafssyni er hér fyrir neðan.