Meistaranemar við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands hófu í gær styrktarsöfnunina Upplifun fyrir alla – Styrktarsöfnun Háskóla Íslands fyrir Reykjadal. Söfnunin stendur til 23. febrúar næstkomandi og er hægt að leggja henni lið á margvíslega vegu í gegnum styrktarsíma eða viðburði.
Í tilkynningu frá stúdentunum í dag segir að í Reykjadal sé að finna einu sumarbúðirnar fyrir fötluð börn á Íslandi. Árlega dvelji þar um 300 börn á aldrinum 8-21 árs alls staðar að af landinu. Í Reykjadal eigi börnin ævintýradaga í frábæru umhverfi.
\"Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og lýsa einkunnarorðin gleði - árangur - ævintýri dvölinni vel. Lögð er áhersla á íþróttir og leiki, útivist og sköpun. Sundlaug og heitur pottur eru á staðnum auk hesta sem börnin hafa aðgang að.
Nýlega var sumarbúðum fyrir fötluð börn á Stokkseyri lokað og hefur það skapað aukið álag á Reykjadal. Langir biðlistar eru í sumarbúðirnar og er biðtíminn í dag tvö ár. Því er nauðsynlegt að tryggja Reykjadal nægjanlegt fjármagn svo hægt sé að hefjast handa við stækkun til að mæta biðlistum,\" segir í tilkynningunni.
Meðal þess sem í boði er á meðan styrktarsöfnunin stendur yfir eru kvikmyndasýning í Háskólabíói, fjölskyldubingó á Háskólatorgi, fjöltefli í Smáralind o.fl. en hægt er að sjá yfirlit yfir alla viðburði á Facebook-síðu söfnunarinnar https://www.facebook.com/upplifunfyriralla/.
Einnig er hægt að leggja söfnuninni lið með því að hringja í styrktarnúmerin:
* 901 5001 (1000 krónur)
* 901 5002 (2000 krónur)
* 901 5005 (5000 krónur)
Hægt er að fylgjast með söfnuninni og viðburðunum á áðurnefndri Facebook-síðu og á myllumerkinu #upplifunfyriralla á öðrum samfélagsmiðlum.