Sindri Þór Stefánsson, sem strauk úr fangelsinu að Sogni í nótt, tók sömu Icelandair flugvél til Svíþjóðar og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín fór utan á leiðtogafund Norðurlandanna og átti núna síðdegis fund Shri Narendra Modi með forsætisráðherra Indlands.
Í frétt á vef RÚV er haft eftir farþega að Katrín Jakobsdóttir hafi flogið á almennu farrými en forsætisráðuneytið tjái sig ekki um málið.
Umrætt flug Icelandair fór frá Keflavíkurflugvelli klukkan 07:34 til Svíþjóðar og lenti á Arlanda-flugvellinum klukkan 12:45 að staðartíma eða 10:45 að íslenskum tíma. Lögreglan á Suðurnesjum vinnur nú að því í samstarfi við sænsk lögregluyfirvöld að hafa uppi á Sindra en alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út.