Gærdagurinn, 15.mars fyrir sjö árum markar upphaf stríðins í Sýrlandi. Aðdragandi stríðsins og upphafið má útskýra en staðan í dag með öllum þeim stríðandi hópum í átökunum er gríðarlega flókin auk þess sem segja má að upplýsingastríð eigi sér líka stað. Gunnar Hrafn Jónsson, áður fréttamaður erlendra frétta hjá RÚV og fyrrum þingmaður og Ólöf Ragnarsdóttir, sem kennir við Háskóla Íslands nútímasögu og stjórnmál Sýrlands auk arabísku, ræddu um Sýrland í Þjóðbraut í gærkvöld, en þátturinn er endursýndur í dag og er einnig aðgengilegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.