Stressuð kind sem var að jafna sig eftir sauðburð slasaði konu

Kona sem fór fram á bætur eftir að stressuð kind stökk á hana fær ekki bætur úr ábyrgðartryggingu bónda vegna slyssins. Úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum mat það svo að ósannað þætti að rekja mætti slysið til atvika sem bóndinn bæri skaðabótaábyrgð á. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins. 

Konan var gestkomandi á bóndabæ þar sem sauðburður stóð yfir. Konan var að aðstoða við að færa kind og lömb í fjárhús á bænum. Konan stóð vaktina í dyrunum til að koma í veg fyrir að kindin næði að sleppa út. Kindin var hins vegar stressuð og rauk á konuna þegar hún reyndi að troða sér í gegnum dyrnar. Við höggið kastaðist konan út, lenti illa og slasaðist á hægri öxl. Konan vildi meina að hún hefði ekki fengið réttar leiðbeiningar hvernig hún ætti að bera sig að, hún væri óvön og ekki komið nálægt búskap áður. Þá sagði konan að við þessar aðstæður gætu dýr verið óróleg og árásargjörn og bóndanum hefði láðst að tryggja öryggi á svæðinu.

Bóndinn sagði kindina hafa verið að jafna sig eftir sauðburð og karað lömb sín í fjárhúshlaðinu en það er þegar ærin sleikir lambið eftir burð. Þá segir einnig að staðið hafi til að færa kindina og lömbin í einstaklingsstíu í fjárhúsinu eftir sérstakri göngubraut. 

Þegar lömbin hafi verið komin hálfa leið upp göngubrúna hafi ærin orðið óörugg og sótt aftur út á fjárhúshlaðið. Konan hafi staðið úti á fjárhúshlaðinu og óumbeðið gert sig líklega til að varna henni útgöngu. Ærin hafi ætt út og á konuna þannig að hún féll og slasaðist. 

Úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum segir í úrskurði sínum að engin skýr sönnunargögn liggi fyrir um að ær kunni að vera hættulegar við sauðburði. Bóndanum hafi því ekki borið að vara konuna við mögulegri hættu sem gæti stafað af ánni þegar hún reyndi að komast út. Konan eigi því ekki rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu bóndans.