Ein skemmtisaga fyrir svefninn. Í dag hringdi eigandi Systrasamlagshússins í mig. Lögmaður hans var hjá sýslumanni í dag hvert hann hafði verið boðaður á fund með lögmanni Seltjarnarnesbæjar. Erindið var ósk bæjarins að fá að rífa húsið fyrr en áætlað var. Í ljós kom að bæjarstjóra var mikið í mun að fá að rífa húsið \"sem fyrst\". Óskinni var hafnað af sýslumanni og húsið fær að standa.
Það er mér því sérstakt ánægjuefni að greina frá því að næstu vikurnar hefur Systrasamlagshúsið fengið nýtt hlutverk; húsið verður kosningamiðstöð Viðreisnar/Neslistans.