Gestir þáttarins Fólk með Sirrý í gærkvöld áttu það sammerkt að hafa losað sig samtals við 140 kíló, en rætur offituvanda þeirra og lausnirnar sem hafa virkað fyrir þær reyndust þó af af misjöfnum toga.
Það er óhætt að segja að Jónu Hrönn Bolladóttur, sóknarpresti í Garðabæ, Sólveigu Sigurðardóttur hjá Lífstíl Sólveigar og Esther Helgu Guðmundsdóttur, sérfræðingi í matar- og fíkniráðgjöf, sem voru gestir þáttarins í gærkvöld, sé heldur betur létt eftir að hafa sigrað í baráttuna við vigtina. Þær sögðu sögu sína af einlægni, hispursleysi og gleði hjá Sirrý og drógu ekkert undan í lýsingum sínum á því að takast á við byrðar sínar.
Séra Jóna Hrönn vakti á því athygli í þættinum hvað streituspik meðal íslenskra kvenna er orðið algengt, en álag í starfi skapi oft og tíðum bólgur og óreglu í mataræði. Konur undir þessum kringumstæðum geti verið allt í senn feitar, vannærðar og þreyttar.
Sólveig sagði sögu sína af því að hafa notað margs konar lyf sem leiddu hana í vítahring, en á endanum gat hún varla klætt sig án stuðnings. Í dag getur hún bæði hlaupið og er án lyfja.
Esther Helga sagði að matarframleiðendur laumi ávanabindandi efni í matvæli og af þeim sökum séu Vesturlandabúar stöðugt að fitna. Sjálf hefur hún misst 60 kíló á örfáum árum, eða helming líkamsþyngdar sinnar. Í dag gengur hún á fjöll og hefur starfsorku á við unga fólkið.
Fólk með Sirrý er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:00 á miðvikudagskvöldum í haust og vetur og alltaaf sjáanlegur á hringbraut.is.