Af samtölum við fólk í ferðageirunum virðist sem straumur fólks liggi annaðhvott vestur eða norður um páskahelgina, einkum þó norður og hafa nokkrir þeirra á orði að Akureyri og Tröllaskagasvæðið sé einfaldlega að slá í gegn þessa eina mestu ferðahelgi ársins. Akureyri sé visSulega alltaf jafn vinsæll áfangastaður ferðamanna og sæki enn í sig veðrið, jafnt að vetri sem sumri, en svæðin í kring, ekki síst Siglufjörður hafi styrkt allt svæðið til muna, en sem kunnugt er hefur staðið yfir mikil uppbygging í ferðaþjónustunni í gamla síldarbænum gamla sem hefur hrifið landsmenn alla upp úr skíðaskónum og öðrum fótbúnaði.
Athygli vekur einnig hversu vel hefur bókast í ferðalög til útlanda síðustu dagana fyrir páska, en varla mun vera laust sæti í þeim vélum sem eru að fljúga með fólk í fríið beggja vegna Atlantsála. Að sögn fólks í bókunarþjónustu flugfélaganna eru páskarnir í ár þeir mest bókuðu hjá félögunum frá bankahruni.
Stefna er því þessi; norður eða niður til heitari landa.