Straumur flóttafólks til króatíu

Um það bil fjögur þúsund flóttamenn komu til Króatíu frá Serbíu síðastliðinn sólarhring, eftir að Ungverjar lokuðu landamærum sínum. Þaðan verður þeim hleypt til Evrópusambandsríkja, að sögn króatísku sjónvarpsstöðvarinnar HRT.
 

Aukalest með um 800 flóttamenn kom um hálffjögurleytið í nótt frá króatíska bænum Tovarnik við serbnesku landamærin til Dugo Selo, í grennd við höfuðborgina Zagreb, að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í morgun. Þaðan voru þeir fluttir í skráningarbúðir. Einn flóttamaðurinn greindi króatíska sjónvarpinu frá því að um sjö þúsund manns væru við landamæri Serbíu og Ungverjalands, án skjóls og matar- og vatnslausir.

Vesna Pusic, utanríkisráðherra Króatíu, sagði í gærkvöld að Króatar væru viðbúnir því að taka á móti nokkrum þúsundum flóttamanna, en allt færi úr böndunum ef þeir yrðu nokkrir tugir þúsunda, svo sem segir í fréttinni.