Straumsvík: yfirmenn skipa út áli í dag

Forstjóri álversins í Starumsvík ásamt tveimur staðgenglum sínum, sex framkvæmdastjórum, hafnarverkstjóra og stjórnarmönnum fyrirtækisins mega skipa út áli í Straumsvík, en byrjað verður á verkinu um hádegisbil.
 
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að 15 yfirmenn mættu ganga í störf hafnarverkamannanna, en að sögn Ólafs Teits Guðnasonar, upplýsingafulltrúar álversins er óvíst hversu margir yfirmenn fyrirtækisins taka til hendinni við kajann í dag, en þrír stjórnarmenn eru búsettir erlendis. 
 

Kolbeinn Gunnarsson, formaður Hlífar segir niðurstöðu sýslumannsins hafa komið sér á óvart:  \"Við töldum að þarna væru þrír stjórnendur sem mættu ganga í þessi störf - forstjóri, framkvæmdastjóri flutningasviðs og verkstjóri. Það kom mér á óvart að þarna væri verið að opna á framkvæmdastjóra og staðgengil framkvæmdastjóra auk þess sem stjórn Rio Tinto má vinna í þessum útflutningi,“ er haft eftir honum í RÚV í morgun.