Nú er árið 2019 að baki og nýtt ár runnið upp, árið 2020. Margir fasteignaeigendur huga að hinum ýmsu verkefnum í byrjun árs sem tengjast fasteigninni og velja sér draumaverkefni. Eitt af þeim verkefnum sem margir huga að í ársbyrjun er garður heimilisins og hvaða straumar og stefnur eru í gangi á nýju ári þegar kemur að garðhönnun, hönnun palla skjólgirðinga og svo framvegis.
Teymið hjá Urban Beat, Björn Jóhannsson og samstarfsfólk hans hafa farið yfir liðið ár og velt fyrir sér straumum og stefnum nýja ársins. Hvað skyldi teymið hjá Urban Beat telja að muni einkenna árið 2020? Samkvæmt hugleiðingum sem Björn Jóhannsson landslagsarkitekt kastar fram í bloggi sínu er að tískubreytingar í garðhönnun séu frekar hægar samanborið við aðrar tískusveiflur. Björn er á því að garðeigendur skipti ekki eins oft um stíl í garðinum og föt og bíla þótt margir breyti til um lit á girðingum og skipti út plöntum. Margt af því sem var flott fyrir 10 árum í garðhönnun þykir því ennþá fallegt. „Þó sjáum við árlega breytingar og vísbendingar um hvað verður „heitt“ næstu árin. Vísbendingarnar koma víða að og meðal annars frá viðskiptavinum okkar hér á landi og hönnunarverkefnum snillinga úti í heimi. Það eru ýmsar nýjungar á leiðinni og skrifast margar þeirra á breyttan hugsunarhátt og aðrar áherslur en verið hafa undanfarin ár, “ segir Björn.
„Að okkar mati mun garðhönnun þessa árs taka mið af breytingum á ferðavenjum fólks, aukinni áherslu á umhverfismál og litapallettu sem inniheldur hlýrri liti en verið hefur. Fjölskyldan verður í fyrirrúmi með meiri áherslu á yngri meðlimina. Náttúrulegt yfirbragð garðsins mun einnig skipa stærri sess. Hvað liti varðar þá hefur „rekaviðargrár“ verið ríkjandi og mun verða það áfram bæði vegna umhverfisþátta og áherslu á lágmarks viðhald. Aðrir litir og tónar munu samt lauma sér þarna inn. Gestagangur, veislur og þörfin til að hitta ættingja og vini eru þættir sem munu hafa áhrif á hönnun garðsins. Garðurinn mun fá aukið notagildi og tekur á sig yfirbragð setu- og borðstofu. Meiri áhersla verður einnig lögð á vellíðan, bæði líkama og sálar. Í fyrra kom kaldi potturinn sterkur inn sem eitt það „heitasta“ og verður hann áfram vinsæll en núna mun hugleiðsluhornið að öllum líkindum bætast við á óskalista margra. Að geta notað garðinn til afþreyingar og íþróttaiðkunar verður áberandi. Að lokum munu umhverfismál og þá sérstaklega frárennsli og endurnýting byggingarefna setja mark sitt á árið,“ segir Björn og er þegar kominn á fullt í hönnun á nýju ári, fullur af ferskum og nýju hugmyndum í takt við tíðarandann.
Hægt er að lesa bloggið um garðhönnun fyrir árið 2020 hjá Urban Beat á heimasíðu þeirra: