Hvaða stefnu ber að taka gagnvart sjávarútvegi, úthlutun eða sölu aflaheimilda, virðist hafa skipt mestu um að Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, mistókst að mynda ríkisstjórn með Viðreisn og Bartri framtíð.
,,Ég tel að samtöl undanfarinna daga hafi leitt í ljós að það væri afar óvarlegt að leggja af stað með þann málefnagrunn sem um er rætt og nauman meirihluta inn í kjörtímabilið. Margt segir mér að aðstæður kalli á ríkisstjórn með breiðari skírskotun og sterkari meirihluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið. Ég útiloka ekkert fyrirfram í þeim efnum,” segir Bjarni í tilkynningu sem send var eftir að viðræðurnar strönduðu.
„Það var auðvitað umræða um ákveðnar kerfisbreytingar og þá bæði spurningin um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB en líka breytingar í sjávarútvegi þar sem var langt á milli manna,“ hefur Vísir eftir Óttarri Proppé, formanni Bjartrar framtíðar.
Óhætt er að draga þá ályktun að mestu hafi skipt mjög ólíkar skoðanir hvað varðar framtíðarskipan í sjávarútvegi.
-sme
Uppfærð frétt kl 15:43
Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður Viðreisnar og þingmaður skrifar í Facebook, rétt í þessu:
Formaður Sjálfstæðisflokksins stöðvaði viðræðurnar í dag. Hann hefur metið það svo að ekki væri unnt að ná saman að sinni í grundvallarmálum en Viðreisn og Björt framtíð lögðu upp með það í viðræðunum, eins og í kosningabaráttunni allri, að málefnin réðu för en þar töluðum við m.a. fyrir mikilvægum breytingum í sjávarútvegsmálum.