Bryggjan, nýr þáttur um sjávarútveg heimsækir í fyrsta þættinum Kristínu Pálsdóttur í útgerðarfyrirtækinu, Vísi í Grindavík. Kristín er stjórnarformaður þessa farsæla fyrirtækis. Það á hálfrar aldar sögu og var stofnað að foreldrum hennar þegar þau fluttu frá Keflavík til Grindavíkur.
Kristín er ein af sex systkinum sem hafa öll tekið þátt í rekstri fyrirtækisins með einum eða öðrum hætti. Hún minnist þess að strákarnir og tengdasynirnir í fjölskyldunni voru sjálfskipaðir í störf og við stjórn Vísis en þær systurnar gerðu annað. Það breyttist þó eins og sjá má á stöðu Kristínar í dag en konur í sjávarútvegi verða sífellt meira áberandi.