Orkupakkamálið braut blað í íslenskri stjórnmálaumræðu, og ekki á jákvæðan hátt „Það var bara brotið blað í íslenskir stjórnmálaumræðu varðandi orkupakkamálið, og ekki á jákvæðan hátt, “ sagði Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, í viðtali í nýjum stjórnmálaumræðuþætti, Stóru Málin, sem eru að hefja göngu sína á hér á Hringbraut.is um helgina.
Hún var harðorð þegar hún var spurð út í umræðuna í kringum hið umdeilda þriðja orkupakkamál sem og Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem var einnig gestur í þættinum. „Það jákvæða var að þessi tilraun brotlenti,“ sagði Hanna Katrín og bætti við: „Og það má segja að það hafi verið meirihluta íslenskra stjórnmálamanna, flestum íslenskum fjölmiðlum og almenningi að þakka að þetta tókst ekki í þetta skiptið.“
Vilhjálmur tók í sama streng og sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa staðið undir hlutverki sínu sem kjölfesta í íslenskum stjórnmálum í þessu máli, en mikill þrýstingur var á forystu flokksins um að hafna orkupakkanum og kom sá þrýstingur úr grasrót flokksins. „Það er mikilvægt að það sé stöðugleiki í samfélaginu, og það er mikil ábyrgð, flokkurinn axlaði hana, og við þurfum að læra af þessu máli,“ bætti hann svo við.
Hér að neðan má svo sjá Stóru Málin í heild sinni.