Stóru málin: hanna katrín segir viðskiptaumræðuna við mike pence vera leiktjöld

„Upplifun mín er sú að að þetta með viðskiptahagsmunina hafi verið leiktjöld, með fullri virðingu fyrir alla hlutaðeigandi, ég held að varaforsetinn hafi ekki komið hingað til lands til þess að ræða um viðskipti,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, um yfirskin fundar varaforseta Bandaríkjanna, Mike Pence, með utanríkisráðherra Íslands, Guðlaugi Þór Þórðarsyni.

Þetta kom fram í þjóðmálaþættinum Stóru Málin sem hófu göngu sína á Hringbraut.is um helgina. Guðlaugur Þór sagði áður en fundurinn hófst að að viðskipti yrði helsta umræðuefni heim­sókn­ar­ varaforsetans. Hanna Katrín bætti svo við að það væri ljóst að helsta markmið Mike Pence hafi verið að ræða öryggi og varnamál. „Og kemur til vegna aukins áhuga Rússa og Kínverja á málefnum norðurslóða,“ bætti hún svo við.

Hanna Katrín sagði enn frekar að svör ráðamannanna hafi verið loðin að auki og það hefði verið með ólíkindum að varaforsetinn og utanríkisráðherrann hefðu gengið út með mismunandi skilning á afstöðu Íslendinga til fjárfestingaleiðar Kínverja, Belti og Braut, en Mike Pence þakkaði Íslendingum fyrir að hafa hafnað þeirri leið. Guðlaugur Þór leiðrétti það sama dag, og sagði ekki rétt að Ísland hefði hafnað slíku. Einungis að engin ákvörðun hefði verið tekin í þeim málum. Vilhjálmur Árnason, sem var einnig gestur Stóru Málanna sagði erfitt að segja til um hvað fram fór á fundinum og því þurfi að fara varlega í að draga ályktanir af honum spurður hvort einhver raunverulegur ávinningur hafi orðið af fundinum fyrir hönd Íslands.

Hér að neðan má svo horfa á Stóru Málin í heild sinni.