Lögreglan Í osló, höfuðborg Noregs hefur girt af stórt svæði í kringum háskólann í borginni af óitta við að hlutur sem þar fannst reynist vera sprengja. Skotið var á öryggisvörð við skólann í nótt þegar hann varð var við tvo grunsamlega menn á skólalóðinni, en hann slapp án meiðsla.
Samkvæmt norska útvarpinu þá er þetta í annað skiptið í ár sem ráðist er á öryggisvörð á háskólasvæðinu á borginni. Aftenposten hefur eftir lögreglu á staðnum að þar sem hluturinn fannst skammt frá þeim stað þar sem skotárásin átti sér stað í nótt er ekki hægt að útiloka að um sprengju sé að ræða og til þess að gæta fyllsta öryggis hafi stórt svæði verið rýmt.
Samkvæmt frétt VG fundust tveir grunsamlegir hlutir í poka á staðnum.