Stormy kærir trump fyrir meiðyrði

Klámmyndaleikkonan Stormy Daniels og lögfræðingur hennar tilkynntu í dag að hún hefði kært Donald Trump forseta fyrir meiðyrði.

Daniels sagði að tilefnið væri Twitterfærsla forsetans þar sem hann hann gerði lítið úr birtingu Daniels á skissu af manni sem Daniels segir hafa hótað sér líkamsmeiðingum á sínum tíma segði hún frá sambandi þeirra Trumps.

Í Twitterfærslunni sagði Trump að hún sýndi mann sem væri ekki til, þetta væri algjör blekkingaleikur til að spila með fjölmiðla. Í kærunni segir að tístið hafi verið bæði rangt og meiðandi.