Stormviðvörun í 52 daga

Vindstyrkur á landinu hefur farið yfir 20 m/s samtals 52 daga á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Það merkir að aðeins 7 daga frá áramótum hefur veður verið skaplegt og ekki þurft að gefa út stormviðvörun. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir í samtali við hringbraut.is að það séu ekki endilega tíðir stormar sem veki athygli þegar veðurlag ársins er skoðað heldur miklu fremur hvað veðrið hefur verið hviðukennt. Sömu mánuði á síðasta ári geysaði stormur í 48 daga, eða álíka og í ár, en þá voru hviður sem náðu yfir 40 m/s mun sjaldgæfari, en það gerðist 16 daga í janúar og febrúar 2012 samanborðið 23 daga í ár, eða nærfellt annan hvern dag. "Það sem hefur einkennt tíðarfarið í vetur er hvað lægðirnar hafa farið þétt yfir landið og hversu fáir góðviðriskaflar hafa komið," segir Elín Björk að lokum.