Helgin: varasamt ferðaveður

Síðasta helgi Þorra ætlar um margt að vera vetrarleg: Í kvöld og nótt er vaxandi norðaustanátt á norðvestanverðu landinu og á morgun er útlit fyrir storm á Vestfjörðum með snjókomu og skafrenningi.

Veðurstofan sér ástæðu til að gefa út viðvörun vegna þessa, en þegar líður á morgundaginn dreifir hvöss norðanáttin úr sér um norðanvert landið með snjókomu, jafnvel talsverðri um tíma og má því búast við varasömu ferðaveðri á þessum slóðum.

Ljóst er að þjóðleiðir munu teppast af völdum þessa veðurlags. Enn sem komið er er þó færð með skaplegum hætti, en veður munu skipast skjótt, svo sem að ofan greinir.

Á Suðvesturlandi eru hálkublettir á vegum. Snjóþekja er á Hellisheiði og Þrengslum. Á Suðurlandi er víðast hvar nokkur hálka eða snjóþekja.

Það er hálka og snjóþekja á flestum vegum á Vesturlandi en flughálka er á Útnesvegi og í Álftafirði.

Á  Vestfjörðum er hálka og snjóþekja á vegum og éljagangur mjög víða.

Á Norðurlandi eru flestir vegir færir, þar er ýmist hálka eða snjóþekja. Éljagangur er nokkuð víða á Norðurlandi.

Hálka og snjóþekja á velflestum vegum á Austur- og Suðausturlandi og éljagangur nokkuð víða.