Stormur skollinn á stórhöfða

Storm­ur er skollinn á Stór­höfða í Vest­manna­eyj­um. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands bendir allt til að fárviðrisspáin þar sem vindstykur mun ná fellibylsstyrk gangi eftir.

Siglingum Herjólfs hefur verið aflýst, enda vindstyrkur kominn upp í 19 metra á sekúndu sunnan landsins. Vindstyrkur gæti farið yfir 50 metra í hviðum og eftir því sem líður á daginn verður hvergi á landinu útivistar- hvað þá ferðaveður.

Minnt skal á vefinn vedur.is auk þess sem Hringbraut og helstu fréttavefir munu segja tíðindi og vara við eftir því sem óveðrinu vindur fram.