Suðaustanhvassviðri eða -stormur verður á landinu í dag með kalsarigningu eða slyddu og mikilli hálku á vegum. Ekki tekur betra við á morgun þegar búist er við suðvestanstormi.
Búast má við mikilli úrkomu suðaustanlands þegar líða tekur á daginn, en hægara veður verður fyrir norðan og að mestu úrkomulaust fram eftir degi, en síðan brestur hann á með suðaustan 18 til 25 og snjókomu eða slydda, hvassast á annesjum.
Það lægir talsvert vestanlands í kvöld, en það varir stutt, því á morgun brestur á með suðvestan 18 til 25 með éljum og hviðum á annesjum. Hlýtt verður í veðri í dag, allt að fimm stigum, en svo kólnar á morgun.
Færð er víða viðsjál á þjóðleiðum. Óveður er undir Hafnarfjalli. Á fjallvegum má búast við hríðarveðri og blindu. Það hlánar þó á Hellisheiði og Mosfellsheiði þegar líður á morguninn og þar verður bleytuhríð til kvölds. Þegar leysir á láglendi verður staðbundið flughált og vatnselgur á götum í þéttbýli. Það kólnar aftur síðdegis og frystir í kvöld. Á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli er reiknað með hviðum 30 til 35 m/s fram undir kl. 15 dag.
Það er snjóþekja á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum, og bæði ofankoma og skafrenningur á svæðinu. Þæfingsfærð er á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði en annars er hálka eða snjóþekja víðast hvar á Suðurlandi.