Óveðurslægðin er nú stödd við Reykjanes, en hæðarhryggurinn sem hélt á móti henni og hjálpaði til við að mynda vindstrenginn mikla yfir landinu hefur hörfað til norðurs upp eftir austurstönd Grænlands.
Snjóflóðahætta er nú á sunnanverðum Vestfjörðum, norðanverðum Vestfjörðum, Miðnorðurlandi og á Austurlandi að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.
Mesti veðurhamurinn hefur gengið niður, en lægðin er þó enn það nærri landi að hún viðheldur stormi eða roki nokkuð víða um land og með fylgir rigning á láglendi. Síðdegis í dag fer lægðin ákveðið til vesturs burt frá landinu og þá lægir svo um munar.
Á morgun verður meira og minna hæg breytileg átt á landinu. Úrkomu er ekki spáð svo neinu nemi og sólin lætur eitthvað sjá sig. Það frystir víða um land.
Út vikuna er útlit fyrir rólegan vind í það heila, það verður kalt og einhver ofankoma gerir vart við sig.