"Um leið og maður er kominn yfir 6000 metra fer verulega að reyna á andlega og líkamlega. Matarlystin minnkar og kroppurinn sömuleiðis undan álaginu. Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni sem eitt af áföngunum við að klífa fjallið," skrifar Vilborg Arna Gissurardóttir sem er að færa sig úr grunnbúðum við Everest upp í átt að toppnum, en þar hyggst hún standa eftir réttan mánuð.
Vilborg, sem reynir nú öðru sinni við hæsta fjall heims og varð frá að hverfa síðast vegna mannskæðra snjóflóða, segir veðurlag núna vera með b esta móti: "Sólin hefur verið hátt á loftið og við stundað æfingarnar okkar af krafti. Í gær fórum við aftur upp í ísfallið og nú lengra en síðast. Magnað að fara þarna í gegn, það er gengið á snjóbrúm, stokkið yfir sprungur og farið á álstigum yfir þær risa stóru, eins er þetta nokkuð bratt á köflum með tilheyrandi brölti. Við erum auðvitað í línum og notum allan tiltækan öryggisbúnað. Þetta er stórkostlegt og ógnvekjandi í senn."
Hún segir manninn ansi lítinn í þessu umhverfi, en miklu muni í þessu umhverfi að hafa góðan hóp í kringum sig: "Hópurinn minn er góður og klár á sínu, þess vegna getum við ferðast nokkuð hratt yfir. Á morgun er komið að tímamótum í leiðangrinum er við leggjum af stað í fyrstu aðlögunarferðina. Við byrjum á að ganga upp í fyrstu búðir, 5900m, og áætlað er að ferðalagið taki á bilinu 6-8 klst. Þar verðum við í tvær nætur til að aðlagast nýrri hæð og undirbúa okkur fyrir búðir tvö. Gangan þangað tekur 4-5 klst og þá munum við dvelja í 6400 m í 5 daga."
Sem fyrr segir áætlar Vilborg Arna að komast á topp Everest eftir mánuð' ef allt gengur eftir.