Stórkostlegar áhyggjur af samgöngum

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir fólk í atvinnugreininni hafa stórkostlega áhyggjur af hversu samgöngumannvirkjum er ábótavant. Hún segir brýna nauðsyn vera til lagfæringa.

Helga segir í raun vera merkilegt hversu vel hefur tekist að vinna úr því sem fylgt hefur hinum öra vexti í atvinnugreininni. Tekjuaukning ríkissjóðs einungis vegna virðiskaukaskatts í ferðaþjónustu jukust um tíu milljarðar milli áranna 2014 og 2015.

Hér má sjá sýnishorn úr viðtalinu við Helgu, en Þjóðbraut er á dagskrá kl.21.00 í kvöld.