Stórkostleg reisn yfir dauða bowie

Sjöunda janúar sl. eða fyrir aðeins fjórum dögum, birti goðsögnin David Bowie, sem lést í gær, nýtt myndband. Lazarus, með lagi á glænýrri plötu stórstjörnunnar.

Í laginu, sem sýnir banalegu Bowie, syngur hann um dauðann, frelsið, himininn og fleira gott. Óhætt er að segja að sjaldan hafi meiri reisn eða tign fylgt dauða nokkurrar stjörnu.

Hálft Ísland syrgir nú Bowie líkt og heimurinn allur. Á félagsmiðlum fjallar annað hvert orð og myndir landsmanna um hina föllnu hetju en myndbandið, sem kannski má spá því að verði ódauðlegt, má sjá hér.

Því þótt Bowie sé dauðlegur líkt og allir menn er listin það ekki.

Tónlistin er sjálfur Guð almáttugur, sagði Jón Leifs.