Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur, Friðjón R. Friðjónsson, almannatengill hjá KOM og Stefán Pálsson, sagnfræðingur fara með Lindu Blöndal yfir stöðuna í borgarstjórnarmálum.
Þátturinn er fyrst sýndur kl.21.00 alla fimmtudaga.
Átta flokkar setjast í borgarstjóri, þar af fjórir nýjir.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk flest atkvæði og meirihlutinn féll. Viðreisn komst í oddastöðu með tvo fulltrúa og hafa hafið formlegar viðræður um meirihlutastjórn með Samfylkingu, Pírötum og VG sem allt hefði þá 12 fulltrúa.
Friðjón telur ólíklegt að Viðreisn muni snúa sér að Sjálfstæðisflokknum í þessu ferli þótt flokkurinn hafi verið í stjórn með Sjálfstæðismönnum á landsvísu, til þess sé og stirt á milli Morgunblaðsmanna sem Eyþór Arnalds á tengsl við og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar og bendir Stefán á að það sé stórt mál að ganga úr flokki eins og Þorgerður gerði. Það grói seint á milli manna. Kristrún bendir á að svo virðist sem Viðreisn telji sig hafa eitthvert formlegt umboð til meirihlutamyndunar og það hljóti að vera svo að Eyþór Arnalds og Sjálfstæðisflokkurinn sé að tala við aðra líka um meirihlutamyndun.
Málefni kosningabaráttunnar voru Borgarlína og svo ýmist mál sem komu upp rétt fyrir kosningar og segir Stefán að menn hafi allt í einu farið að tala út og suður og alls konar mál sem væru ekkert ákveðin. Kristrún segir áberandi hver velferðarmálin hafi ekki verið rædd af neinu marki og vinstri stjórnin með Samfylkinginguna í fararbroddi í borginni hafi frekar verið með „stórkarlalegar“ áherslur um til dæmis byggingamagn í borginni. Menntamál, umönnunarmál og leikskólamál hafi ekki átt upp á pallborðið í undanfara kosninga Samfylkingar sem hefur ávallt fagnað góðu fylgi kvenna.