Eins dauði er annars brauð. Hæstaréttarlögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson hafa verið skipaðir skiptastjórar yfir þrotabúi WOW air.
Ólga ríkir innan lögmannastéttarinnar vegna málsins. Í samtali við Morgunútvarp Rásar 2 gagnrýndu lögmennirnir Kristrún Elsa Harðardóttir og Saga Ýrr Jónsdóttir harðlega hversu ógegnsætt ferlið er við skipun skiptastjóra. „Það er enginn hissa á því að tveir miðaldra karlmenn séu skipaðir yfir þessu stóra búi,“ sagði Kristrún Elsa. „Það er bara það sem gengur og gerist á hverjum einasta degi í okkar bransa. Því miður. Okkur konunum virðist ekki vera treyst fyrir þessum stóru búum.“
Símon Sigvaldason, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, sem skipaði skiptastjórana gaf lítið fyrir gagnrýnina. Sagði hann að þegar um væri að ræða stór þrotabú væru valdir í verkið þeir sem áður hefðu leyst úr stórum búum og hefðu sýnt að þeir gætu tekist á við svo viðamikið og flókið verkefni.
Nánar á
https://www.visir.is/g/2019190409166