Stórir og litlir í sjávarútvegi

Linda Blöndal skrifar:

Umræðan um sjávarútveg vill oftast fara í þann farveg að tala um millljarðana sem stóru fyrirtækin græða. Fyrirtæki í sjávarútvegi, í veiðum, vinnslu og útflutningi eru meira en 400 talsins á landinu. Flest gera bara eitt af þessu.

Af 20 stærstu útgerðarfélögunum er himin og haf á milli hve mikið þau græða. Mestur er arðurinn á þriðja milljarð allt til þess að enginn arður sé. Veiðigjöldin eru frá rúmlega 30 milljónum upp í rúman milljarð.

Það segir sig sjálft að þegar rætt er um sjávarútvegsfyrirtæki er ekki verið að tala um einungis eina tegund af fyrirtæki.

Þau langstærstu gera upp í erlendri mynt. Hin þjást núna vegna hækkandi gengis krónunnar – og sum sem selja mest á Bretlandsmarkað – þjást vegna hruns pundsins. Það er veruleikinn.

Þeir sem bera ábyrgð á hærra gengi krónunnar ógna minni og meðalstórum fyrirtækjum og störfum þeirra hundruða sem fyrir þau vinna.

Hvernig væri að skoða heildarmyndina betur og einblína ekki alfarið á sægreifana svokölluðu? Heil atvinnugrein sem landbyggðin reiðir sig að mestu á er í húfi.