Stóriðja reist á mesta skjálftasvæðinu

\"Jarðskjálftinn við Héðinshöfða norðan við Húsavík í nótt var á nokkurn veginn þeim stað, þar sem búast má við stærsta jarðskjálfta á Íslandi eftir því sem er mat færustu jarðskjálftafræðinga.\"

Þetta skrifar Ómar Ragnarsson á vefsvæði sitt í dag - og bendir á að á þessu svæði sé nú unnið að því, þrátt fyrir aðvörunarorð, að reisa verksmiðju sem verður með fljótandi málmi: \"Vegna þessarar verksmiðju voru veittar stærstu ívilnanir, sem veittar hafa verið enn fyrir stóriðju á Íslandi,\" skrifar Ómar áfram og bendir á að störf vegna stóriðju á Íslandi séu þau langdýrustu sem hægt sé að stofna til, milljarður hvert starf, á sama tíma sem störf við skapandi greinar kosti nokkur prósent af þeim kostnaði: \"Arðinn af stóriðjunni flytja útlendingar úr landi og borga jafnvel engan tekjuskatt.\"

Ómar kveðst efast um að verksmiðjan muni fjölga mjög ungu íslensku fólki til framtíðar á svæðinu; stóriðja stöðví ekki flutning ungs fólks í burtu af landsbyggðinni: \"Fróðlegt væri til dæmis að vita um samsetningu vinnuaflsins hjá Fjarðaráli í Reyðarfirði þar sem sagt hefur verið frá fjölmennri messu kaþólska biskupsins á Íslandi nýlega. Hún skyldi þó ekki hafa verið haldin fyrir Pólverjana á staðnum,\" spyr sjónvarpsmaðurinn kunni og minnir um leið á að sú verksmiðja hafi kostað mestu neikvæðu óafturkræfu umhverfisáhrif sem mögulegt hafi verið að valda á Íslandi.

\"Nýja verksmiðjan norðan Húsavíkur verður reist á miðpunkti mesta jarðskjálftahættusvæðis Íslands. Sú staðreynd hefur ekki haft og mun ekki hafa minnstu áhrif á framgang þess máls. Þannig er Ísland í dag,\" skrifar Ómar Ragnarsson á blog.is.